Glæsilegur og vandaður sjónvarpsskápur frá Ítalíu. fáanlegur í mörgum breiddum og mismunandi hæðumþ Dýpt er 50cm.
Innbyggð í skápinn er skemmtileg lausn fyrir rafmagnssnúrur, þar sem hægt er að tengja allt rafmagn í tengikví inni í skápnum. Á tengikvínni er svo rofi og því hægt að slökkva á öllu rafmagni með einum takka. Skápurinn er á blindhjólum. Gerður úr hertu öryggisgleri.